Málefnasvið nefnda.
(1410327)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
29.10.2014 | 10. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Málefnasvið nefnda. Formaður fór yfir mál sem nefndin hefur áður tekið til umfjöllunar vegna álitaefna um hvort þau heyri undir málefnasvið nefndarinnar eða allsherjar- og menntamálanefndar. Formaður kynnti að hann 1. varaformaður hefðu átt fund með formanni allsherjar- og menntamálanefndar og lagði til að erindi um: Framkvæmd símahlustunar við rannsókn sakamála, Um skyldur sérstaks saksóknara og héraðsdómara í tengslum við símahlustun, húsleitir o.fl., Verklag embættis sérstaks saksóknara við rannsókn mála, yrðu send allsherjar- og menntamálanefnd til umfjöllunar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalli um mál sem varðar framkvæmd sýslumanna við uppboð. Varðandi beiðni Birgittu Jónsdóttur um að nefndin fjalli um samantekt um skipulag lögreglu við mótmælin 2008 - 2011, lagði formaður til að allsherjar- og menntamálanefnd fjalli almennt verklag lögreglu en stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd muni fjalli um skýrsluna, söfnun upplýsinga, persónuverndarsjónarmiðin o.fl. Nefndin samþykkti tillögur formanns. |